William Walton

Úr Wiki í Kennaraháskóla Íslands

Fara á: flakk, leita

Höfundur:Þórunn Harðardóttir

William Walton á 70 ára afmæli sínu
William Walton á 70 ára afmæli sínu

Þessi stutta lexía er um tónskáldið William Walton og víólukonsertinn hans. Hún gæti nýst þeim sem vilja kynna sér konsertinn, eða tónskáldið og þá sérstaklega þeim sem hyggjast flytja konsertinn.


Efnisyfirlit

[breyta] Inngangur

Í þessari lexíu er stuttur efnisþáttur um tónskáldið William Walton. Áhersla er lögð á konsert hans fyrir Víólu, saminn 1929. Hér finnur þú stutt ágrip á lífsferli Waltons, verkaskrá hans í heild sinni, víólukonsertinn er svo tekinn fyrir sérstaklega og greindur. Á eftir koma nokkrar krossaspurningar, heimildaskrá og ítarefni.

[breyta] Æviágrip Walton

Walton fæddist á Englandi 29. mars árið 1902.


William Turner Walton fæddist 29. mars árið 1902 í bænum Oldham. Faðir hans stjórnaði kirkjukór bæjarins og með því að fylgjast með og taka þátt í störfum hans kynntist Walton snemma helstu kórverkum vestrænnar menningar. 10 ára gamall byrjaði Walton sem kórdrengur við drengjakór Oxford háskólans og þegar fram liðu stundir hóf hann nám þar. Reyndar lauk Walton aldrei námi sínu í tónsmíðum, en þegar hann yfirgaf skólann 1920 voru mörg verk hans orðin vel þekkt og notið vinsælda merkra tónskálda, m.a. Hubert Parry og Ralph Vaughan Williams.

Eitt af hans fyrstu stórum verkum, píanó kvartett, var frumfluttur 1923 í Salzburg á Alþjóðlegri hátíð nútímatónlistar (International Society for Contemporary Music) og var vel tekið. Verk hans Portsmouth Point varð svo til að festa Walton enn frekar í sessi sem einn af merkilegustu tónskáldum breta.

[breyta] Verkaskrá

Óperur

   * Troilus og Cressida (1954)
   * Björninn (The Bear) einþáttungur (1967, byggður á leikritinu The Boor eftir Anton Chekhov)

Ballett

   * Kláru meyjarnar (1940, byggt á tónlist J. S. Bach)
   * Leiðangurinn (1943, samið fyrir Frederick Ashton)

Hljómsveitarverk

   * Sinfónía nr. 1 (1935, samin fyrir Hamilton Harty)
   * Sinfónía nr. 2 "Liverpool" (1960, pöntuð af the Royal Liverpool Philharmonic Society)
   * Portsmouth Point, forleikur (1925)
   * Façade Suites fyrir hljómsveit (1926 og 1938)
   * Crown Imperial, hátíðar mars (1937, samið fyrir krýningu Georg sjötta)
   * Scapino forleikur (1940)
   * Tónlist fyrir börn (1941, útsett fyrir hljómsveit upp úr "dúettum fyrir börn")
   * Spitfire Prelúdía og Fúga (1942, úr kvikmyndinni "Hinir fáu fyrstu")
   * Orb and Sceptre, Hátíðar mars (1953, samið fyrir krýningu Elísabetu annarar)
   * Johannesburg Festival Forleikur (1956)
   * Partíta fyri hljómsveit (1957)
   * Perlúdía fyrir hljómsveit (Granada) (1962)
   * Útsetningar á stefi eftir Hindemith (1963)
   * Capriccio burlesco (1968)
   * Spuni út frá verki Benjamin Brittens "Impromptu" (1969)
   * Sónata fyrir strengjasveit (1971, útsett fyrir hljómsveit uppúr Strengjakvartett nr. 2)
   * Sinfónía nr. 3 (1974, skrifuð fyrir André Previn) - ólokið
konsertar
   * Sinfonia Concertante, fyrir píanó og hljómsveit (1927)
   * Víólu konsert (1929, skrifaður fyrir Lionel Tertis)
   * Fiðlu konsert (1939, skrifaður fyrir Jascha Heifetz)
   * Selló konsert (1956, skrifaður fyrir Gregor Piatigorsky)
Kór tónlist
   * Verk fyrir kór og hljómsveit
         o Veisla Belshazzars (1931)
         o Til heiðurs London (1937)
         o Coronation Te Deum (1952, samið fyrir krýningu Elísabetu annarar)
         o Gloria (1961)
   * Verk fyrir kór og orgel
         o Tólfmenningarnir, texti eftir W. H. Auden (1965)
         o Tónlist fyrir Anglican messu, m.a. Missa Brevis (1966) og Jubilate Deo (1972)
   * Verk fyrir kór
         o A Litany (1916)
         o Set me as a seal upon thine heart (1938)
         o Where does the uttered Music go? (1946, skrifað í minningu Henry Wood)
         o Cantico del sole (1974)
         o Fjórir sálmar, m.a. What cheer? (1961)
Kammertónlist
   * Píanó kvartett (1921)
   * Strengjakvartett (stundum nefndur nr. 1) (1922)
   * Dúettar fyrir Börn, fyrir píanó dúett (1940)
   * Strengjakvartett í a-moll (stundum kallaður nr. 2) (1946)
   * Fiðlu sónata, 1947–9. Talsvert endurskrifaður eftir frumflutning 1949, samin fyrir Yehudi Menuhin og Louis Kentner
   * Fimm bagatellur, fyrir sóló gítar (1971, samið fyrir Julian Bream og tileinkað Malcolm Arnold)
   * Passakalía fyrir sóló selló (1980, samið fyrir Mstislav Rostropovich)
Sönglög
   * Façade, fyrir lesara og kammersveit (1922, byggt á ljóðum Edith Sitwell)
   * Þrjú lög, fyrir rödd og píanó (1932, útsett úr Façade)
   * Ástfangni nafnleysinginn, söngflokkur fyrir tenór og gítar (1960, samið fyrir Peter Pears og Julian Bream)
   * Söngur fyrir borðhald Borgarstjórans, söngflokkur fyrir sópran og píanó (1962, frumflutt af Elisabeth Schwarzkopf og Gerald Moore)
   * Sex sönglög fyrir rödd og píanó
Kvikmyndatónlist

athugið: Ártölin eiga við ár tónsmíðarinnar, ekki útgáfu kvikmyndarinnar

   * Escape Me Never, leikstjóri: Paul Czinner (1934)
   * As You Like It, leikstjóri:  Paul Czinner (1936)
   * Dreaming Lips, leikstjóri:  Paul Czinner (1937)
   * A Stolen Life, leikstjóri: Paul Czinner (1938)
   * Major Barbara, leikstjóri:  Gabriel Pascal (1941)
   * The Next of Kin, leikstjóri:  Thorold Dickinson (1941)
   * The Foreman Went to France, leikstjóri: Charles Frend (1942)
   * The First of the Few, leikstjóri:  Leslie Howard (1942)
   * Went the Day Well?, leikstjóri:  Alberto Cavalcanti (1942)
   * Henry V, leikstjóri:  Laurence Olivier (1944)
   * Hamlet, leikstjóri:  Laurence Olivier (1947)
   * Richard III, leikstjóri:  Laurence Olivier (1955)
   * Battle of Britain, leikstjóri:  Guy Hamilton 
   * Three Sisters, leikstjóri:  Laurence Olivier (1969)
annað
   * Christopher Columbus, tónlist fyrir útvarpsleikrit eftir Louis MacNeice (1942)

[breyta] Víólukonsertinn

Víólu konsert William Walton var skrifaður 1929 fyrir hinn fræga Lionel Tertis, víóluleikara. Konsertinn var byggður á fyrsta fiðlu konserti Prokofievs, sem var mikið uppáhaldsverk Waltons. Tertis leist hinsvegar illa á konsertinn og þess vegna var hann frumfluttur af Paul Hindemith. Hindemith hélt mikið upp á þennan konsert og spilaði hann mikið og víða. Konsertinn er tileinkaður konu að nafni Cristabel, vinkonu Walton.

Kaflarnir eru þrír og nokkuð hefðbundnir:


  1. Andante comodo
  2. Vivo, con molto preciso
  3. Allegro moderato

Fyrsti þátttur, Andante comodo, byrjar á laglínu í sóló víólunni og felur í sér bæði dúr og moll hljóma sem gefur byrjuninni draumkennt og óráðanlegt yfirbragð. Seinni stefið er eirðarlausari og leiðir sólóistann og hljómsveitina inn í háværan og kröftugan hápunkt. Endurkoma fyrsta stefsins er leikið á óbó og flautur, meðan víólu sólóið spilar draumkenndan kontrapunkt og fjarar út ásamt hljómsveitinni í lok kaflans.

Annar þáttur, Vivo con molto preciso, er stuttur og hressilegt scherzo, víólan er með rytmaþétt hratt stef ásamt hljómsveitinni þar til málmblásturshljóðfærin kynna til sögunnar annað stef. Þessi tvö stef kallast á og breytast gegnum kaflann, með breytingum í hryni endar á fjörugu nótunum.

Þriðji þátturinn og jafnframt sá síðasti byrjar á hægu fagott sólói sem spilar stefið úr fyrsta kaflanum, en í örlítið breyttri mynd. Sóló víólan tekur undir og hluti hljómsveitarinnnar endurtekur stefið þangað til víólan kemur með nýtt, alvarlegra stef. Fjörugur millikafli undirstrikar þó þessa alvarlegu stemningu og í lokin kemur fúga sem sýnir hversu vel Walton var að sér í hljómsveitarsetningu og yfirburðir hans sem tónskáld koma í ljós. Öll stefin úr hinum þremur þáttum eru fléttuð inn í lokakaflann og endar á fyrsta stefinu úr fyrsta kaflanum, spilað af sóló víólunni. Verkið endar eins og það byrjar, á stefi sem bæði inniheldur dúr og moll, svo þrátt fyrir heilmikið ferðalag er hlustandinn skilinn eftir þar sem hann byrjaði og veltir því fyrir sér hvort og hvað hafi eiginlega gerst síðustu 25 mínúturnar.


Hljómsveitarpartur

Walton endurskoðaði hljómsveitarskorið árið 1960, minnkaði við tré- og málmblásturshljóðfærin, bætti við hörpu og færði nokkrar línur milli hljóðfæra. Hann lét ekki draga hina fyrri útgáfu til baka eins og algengt var, en gaf út þá yfirlýsingu að honum líkað sú seinni betur og er það sú útgáfa sem oftast er flutt í dag. Þessi endurbætta útgáfa var frumflutt árið 1962 af John Coulling og Fílharmóníuhljómsveit Lundúna, stjórnað af Sir Marcolm Sargent.

[breyta] Krossapróf

Skrifaðu þitt texta fyrir spurningar og rétt og röng svör. Bættu við eða þurrkaðu út spurningar að vild.

1. Hvaða ár fæddist William Walton ?

1998
1902
1922
1853

2. Hvað samdi Walton marga strengjakvartetta?

7
15
engan
2

3. Hverju breytti Walton í endurútgáfu sinni á hljómsveitarpartinum við Víólukonsertinn?

tók út tré- og málmblásara, bætti við hörpu og færði til laglínur innan hljómsveitarinnar
skipti sellódeildinni út fyrir 2 kontraklarínett
tók út hörpu og óbó
bætti við rafmagnsbassa og trommusetti

4. Fyrir hvern var fiðlusónata Waltons samin?

Richard Simm
Karólínu Eiríksdóttur
Jascha Heifetz
Yehudi Menuhin

5. Hver frumflutti víólukonsert Waltons?

Guðmundur Kristmundsson
Lionel Tertis
Paul Hindemith
Garth Knox

Stig þín eru 0 / 0


[breyta] Verkefni fyrir nemendur

1) skrifið niður öll helstu stef úr köflunum þremur

2) skrifið dúett fyrir 2 víólur byggðar eingöngu á stefum úr köflunum.

3) hljómgreinið fyrstu 10 taktana í fyrsta kafla og leiðið rök fyrir því hvort laglínan sé í dúr eða moll.

[breyta] Heimildir

Hér skaltu lista upp heimildir sem þú notaðir við að semja lexíuna. Dæmi:

[breyta] Ítarefni