Tuxpaint
Úr Wiki í Kennaraháskóla Íslands
Tux Paint er ókeypis og opinn hugbúnaður sem hægt er að hlaða því niður af slóðinni http://www.tuxpaint.org. Hann sameinar teikningu, hljóð og stimpla og leiðir börn áfram til sköpunar. Notendur byrja með tómt svæði til að teikna á og stendur þeim til boða urmull verkfæra til að skapa með.
[breyta] Almennt um Tux Paint
Tux Paint er teikniforrit ætlað börnum á aldrinum 3 – 12 ára. Viðmótið miðast við lítið læsi og auðvelda vistun og opnun myndefnis. Þar sem allar myndir fara á sama stað í tölvunni hentar forritið sem stafræn ferilmappa og jafnvel glærusýningarkerfi, t.d. fyrir myndasögu eða söguspjald. Myndir verða 640 x 480 eða 800 x 600 punkta stórar.
Mjög auðvelt er að teikna í Tux Paint og styður viðmótið við lesskilning notanda þar sem hægt er að stilla það til að birta skipanir og skilaboð á tungumáli hans.
Hægt er að hlaða ljósmyndum í forritið, svo framarlega sem þær eru í .png formi. Auk png staðalsins ræður Tux Paint við að sýna w:svg eða Scalable Vector Graphics. Þannig er t.d. hægt að teikna myndir af landakorti í Inkscape eða hliðstæðu forriti og nýta það sem bakgrunn (Starters) í Tux Paint, svo framarlega sem þær eru ekki of stórar fyrir forritið.
Tux Paint getur spilar hljóð og það gerir forritið sérstaklega áhugavert til kennslu þar sem hægt er að tengja myndir af hlutum og hljóð saman í stimpla forritsins. Hægt er að taka hljóð af og á tímabundið með að halda niðri ALT og ýta á S (sound).
Tux Paint er gott verkfæri við myndsköpun.
[breyta] Tux Paint config (Stillingar)
Breyta má uppsetningu með að smella á Tux Paint Config sem er í Tux Paint möppunni Þá kemur upp þessi stillingamynd:
Hægt er að ákveða hvað Tuxpaint keyrir í stórum glugga og hvort spila eigi hljóð, stilla á íslensku, ákveða hvort leyfa eigi prentun og hvar eigi að vista myndir en það gæti verið sniðugt t.d. að búa til möppuna tuxmyndir inni í My Pictures möppunni
Tux Paint fer á harða diskinn á þessa slóð:
C:\Program Files\TuxPaint\TuxPaint.exe (Windows)
Í Mac OS X velur notandi hvert forritið fer en best er að búa til möppu í "Applications", nefna hana Tux Paint og draga öll skjöl sem sótt voru á netið þangað.
Stimplar, bakgrunnar, penslar og vistaðar skrár eru geymdar í
C:/Documents and Settings/notendanafn/Application Data/TuxPaint/ (Windows tölvur)
/Users/notendanafn/Library/Application Support/TuxPaint/ (Mac OS X tölvur)
og þar eru undirmöppur sem heita lýsandi skráarnöfnum s.s. Backgrounds, Stamps, o.s.frv.
Hægt er að bæta við stimplum, bakgrunnum og öðru myndefni svo framarlega sem það er í réttri stærð og réttu formi (png eða svg myndir, ogg hljóð)
Hvernig hægt að er búa til sögur í Tuxpaint
LessonPage:Creating Tux Paint Stamp Artwork
Sammála þér með viðtölin á lriovpeolfc.tv – mætti koma meira líf í þessar fréttir – spurning um að þeir ráði bara Hödda Magg ;) 0
Pennant lofar góðu og getur enn bætt sig. Ég hugsa að Rafa gæti hæglega skkikað þennan dreng :biggrin: 0

