Saint Augustine
Úr Wiki í Kennaraháskóla Íslands
== Wiki vefleiðangur. Námskeiðið Nám og kennsla á Netinu vor 2008. Kennari Salvör Gissurardóttir. ==
Efnisyfirlit |
[breyta] Fyrstu páskar í Flórída
4. apríl 1513 silgdi Don Juan Ponce de Leon spænskur landkönnuður fram á gróðursælt land sem honum leist vel á og nefndi það La Florida til heiðurs páskum en La Florida þýðir veisla blómanna sem tákna páska á spáni. Ponce de Leon var í könnunarleiðangri að leita nýrra landa og auðæfa. Á ferðum sínum hafði hann heyrt sögusagnir indjána um kraftaverka uppsperttu þar sem trúað var að vatnið úr uppsprettu þessari (Fountain of Youth) gæti gert gamalt fólk ungt að nýju. Ponce de Leon hugðist kanna sannleiksgildi þessara kraftaverka og setti því stefnuna á Flórída. Staðurinn sem Ponce de Leon og leiðangursmenn hans lögðu að er þar sem nú er Saint Augustine, þar helgaði hann landinu Spáni. Í raun var Ponce de Leon að gera tilkall á allri norðurameríku, frá Flórída til Labrador og stranda á milli en hann hafði ekki hugmynd um hve landið var stórt heldur hélt að þetta væri eyja sem hann ætlaði að sigla í kringum. Mynd:Sýnishorn.jpgbellsouthpwp.net/.../Ponce de Leon.jpg
[breyta] Næstur kom Don Pedro Menendez de Aviles
Don Pedro Menendez de Aviles var besti herforingi Spánverja á þessum árum, konungur Spánar Philip II sendi Manendez til Flórída 1565 til að gæta hagsmuna Spánar og reka á brott þá Frakka og Englendinga sem reynt höfðu að setjast þar að.Menendez hafði fjögur skip í för og skipstjóri eins þess var faðir Francisco Lopez Mendoza Grajales, hann skjalfesti allt sem gerðist á leiðinni og þegar til Flórída var komið.
[breyta] Fyrsta messan
Þegar faðir Lopez kom í land lét hann reisa kross og var þar haldin hin fyrsta kristna messa í Ameríku. Menendez nefndi staðinn Nombre de Dios (í nafni Guðs) og setti faðir Lopez yfir söfnuðinn í St. Augustine, á þessum stað var því fyrsta Kristna messan sungin og Lopez fyrsti safnaðarprestur í Ameríku. Út frá þessum söfnuði spruttu síðan upp trúboðastöðvar um alla Ameríku. Zero Milestone markar austur enda á The Old Spanish Trail, sem er fyrsta gatan milli austurstrandarinnar St. Augustine til vesturstrandarinnar í San Diego en þessa leið fóru trúboðarnir með boðskap sinn fyrstir manna til að reyna að kristna indjánana.
[breyta] Upphaf nútímans í St. Augustine
Saint Augustini vaknaði af erfiðum svefni með komu Henry M. Flagler 1880.Þegar hann fyrst kom til St. Augustine fannst skorta á menningu, eitt gamalt og lélegt hótel var í bænum , en bísnesmaðurinn Flagler sá alla kosti Flórida og fegurð staðarinns svo hann taldi auðvelt laða að ríka fólkið frá New York og fylkjunum fyrir norðan ef byggt væri alvöru hótel. Flagler stóð við orð sín og reisti lúxus hótel með 540 herbergjum, Ponce de Leon hotel sem var opnað 10 janúar 1888. Ponce de Leon hótelið var fyrsta hótel í heimi með rennandi vatni í hvert herbergi og rafmagnsljósum!! Hann lét ekki staðar numið þar heldur byggði annað "ódýrara" hótel Hotel Alcazar handan götunnar þar sem var stæðsta inni sundlaug í heimi,spilasölum, danssölum, hjólreiða- og tennisskólar. Þarna gat almenningur komið og dansað spilað og skemmt sér með fína fólkinu sem kom af Ponce de Leon hótelinu. Flagler lét gera golfvöll á flötinni fyrir framan Alcazar og varð því St. Augustine mekka golfara í Flórída.
[breyta] Minnismerkii Flaglers í St. Augustine
Auk þessara fyrrnefndu hótela reysti Flagler margar aðrar byggingar, mest áberandi eru þó allar kirkjurnar. Nánast allt land í St. Augustine var í eigu hinna ýmsu safnaða því þurfti Flagler að semja við þá um kaup á landi. Oftast greiddi hann fyrir landið með því að byggja kirkjur fyrir söfnuðina og er þar helst að nefna Memorial Presbyterian Church en hana byggði Flagler til minningar um dóttur sína sem lést af barnsförum. Það tók 364 daga að reisa kyrkjuna, til verksins réði hann ítalska listmálara og marmaraútskurðar menn, alla hæfustu smiði New York borgar og var unnið allann sólahringinn. Í kirkjunni er lítil kapella þar sem Jennie dóttir Flaglers, fyrsta kona hans og hann sjálfur liggja. Flagler byggði líka spítala, malbikaði götur, lagði skólplagnir, byggði brunna og setti upp dælur svo fólk fengi rennandi vatn í hús sín, hann lagði líka rafmagn til St. Augustine síðast en ekki síst lagði hann járnbraut frá New York til St. Augustine svo ríku hótelgestirnir kæmust hratt og örugglega. Ekki leið á löngu þar til Flagler lét leggja járnbrautateina lengra suður Flórídaskagann og hætti ekki fyrr en hann var kominn til Key West, alla leiðina má sjá hótel, skóla, kirkjur og aðrar byggingar sem hann reisti á leið sinni til Key West.
[breyta] Saint Augustine í dag
Í dag er mikill uppgangur í St. Augustine. Tveir ört stækkandi háskólar eru starfræktir þar, Miðill:Flagler College, og Miðill:University of St. Augustine
Ferðamannaþjónusta hefur aukist gífurlega síðustu árin, samfara því hafa sprottið upp hótel og „Bed and Brekfast“ sem má líta á sem lúxus útgáfu af hótelum.
Golfvellir eru víða og má nefna World Golf Village, St. Johns Golf Club og fl.
Ósnortin strönd St. Augustine er 43 mílur frá norður innsiglingunni og að suður innsiglingunni, og því nóg pláss fyrir leiki og sólböð, það sem gerir ströndina sérstaka annað en hvað hún er stór og hrein er að það má keyra á ströndinni og það er bannað að vera með sölumennsku þar svo fólk getur verið í friði fyrir ágangi sölumanna.
[breyta] Leiðangur
- Verkefni þetta er fyrst og fremst hugsað sem æfing í notkun Netsins og möguleikum þess, hugmyndin er að fjórir til fimm skólar víða á landinu vinni þetta verkefni saman.
- Verkefnið er fyrir nemendur í 8. til 10. bekkjar.
- Markmið með verkefninu er að nemendur kynnist sem best hvernig hægt er að leita upplýsinga, koma upplýsingum á framfæri, vinna saman á og hafa gaman af Netinu
- Nemendum er skipt upp í hópa þar sem 3 til 5 eru í hópi, helst einn úr hverjum skóla.
- Leiðangurinn er fólgin í því að nemendur eiga að koma sér sjóleiðina til Flórída, lýsa leiðinni og fararkosti.
- Þegar til St. Augustine er komið eiga nemendur að:
- 1) Byrja á því að finna sér hótel til að vera á, kynna hótelið og verðið.
- 2) Finna tvo minnisvarða um landnám Spánverja í St. Augustine
- 3) Finna fimm byggingar sem Henry Flagler byggði og segja frá þeim, í hvaða tilgangi voru þær byggðar, hvaða ár og hvað er þar núna.
- 4) Fara á ströndinna, lýsa leiðinni þangað og segja frá því merkilegasta sem þau sáu á leiðinni og á ströndinni.
