Sækýr vefleiðangur

Úr Wiki í Kennaraháskóla Íslands

Fara á: flakk, leita

Efnisyfirlit

[breyta] Inngangur að leiðangri

Höfundur: María Ölveig Ölversdóttir nemandi í KHÍ. Wikileiðangur þessi er hluti af námskeiðinu Nám og kennsla á Netinu, vor 2008, kennari er Salvör Gissurardóttir.

Mynd:manatee.jpg

[breyta] Vefleiðangur

Verkefni þetta er hugsað fyrir alla aldurshópa þó sérstaklega fyrir nemendur 8. - 10. bekkjar. Markmiðið er að hvetja nemendur til sjálfstæðra vinnubragða í upplýsingaöflun, einnig gæti þessi leiðangur hvatt til þess að viðkomandi og fjölskylda viðkomandi fari útfyrir skemmtigarða og strendur ef þau koma til Flórída Það sem nemendur eiga að gera er að finna allt sem þeir geta um lifnaðarhætti West India sækúa og hvar þær er helst að finna í Flórída. Þeir skulu lýsa heimkynnum sækúa, hættum sem steðja að sækúm og koma með hugmyndir um hvernig helst sé hægt að vernda þær. Nemendur skili inn verkefni með lýsingu á sækúm, segja frá minnst tveimur stöðum sem þær er að finna og leiðarlýsingu þangað frá flugvellinum í Sanford, Florida. Nemendur vinni 3 til 5 í hóp og hafa þrjár vikur til að skila verkefninu.

Sækýr er stórt sjávarspendýr af ættbálknum Sirenia en hann þróaðist frá fjórfættum landspendýrum fyrir yfir 60 milljónum ára. Fullorðin sækýr er frá 2,5 til 4,5 metrar á lengd og getur orðið allt að 700 kg þung.



[breyta] Bjargir


[breyta] Ferli

1. Þegar þið eruð komin í hóp skulu þið hugsa ykkur að þið séðu að fara saman til Flórída þar sem þið ætlið að vera í 10 daga og kynna ykkur allt um sækýr. Hvernig sjáið þið ferðina fyrir ykkur, hvar ætlið þið að gista o.sv.frv.


2. Skiptið með ykkur verkum, en ræðið (og skráið) og berið allt ferlið saman hvort heldur það er á Netinu eða í skólastofunni. Til þess getið þið t.d. notað hugtaka kort eins og Cmap´s[1] þar sem þið sjáið hvaða upplýsingum þið hafið safnað og hvernig er best að raða þeim saman.


3. Safnið saman einhverju myndefni um sækýr og þá staði sem verða á leið ykkar.

[breyta] Heimildir

Wikimedia Commons hefur upp á að bjóða margmiðlunarefni tengt: