Raggae fyrir alla

Úr Wiki í Kennaraháskóla Íslands

Fara á: flakk, leita

Um verkefnið

Þórunn Harðardóttir útbjó þetta stutta verkefni fyrir lítinn hóp af tónlistarnemendum (3-4) á aldrinum 10-12 ára með það í huga að efla sköpun, þjálfa samspil einstaklinga og gera þetta form tónlistar aðgengilegra.


Efnisyfirlit

[breyta] Kynning

Vefleiðangur
Vefleiðangur

Allir geta spilað Reggae. Eftir að hafa tekið þátt í þessum stutta vefleiðangri munt þú og hópurinn þinn geta samið og flutt stutt lög í reggae-stíl. þá er ekkert eftir nema skella sér í nokkra ljósatíma og safna í dreadlocks.


[breyta] Verkefni

Verkefnið sem skila þarf eftir vefleiðangurinn er upptaka (myndband eða hljóð) á tónsmíð hópsins í reggae-stíl; annað hvort lifandi flutningur hópsins í heild eða upptaka sem hefur verið tekin í nokkrum bútum, jafnvel hvert hljóðfæri fyrir sig. Hópurinn ræður hvort sunginn verður texti með tónsmíðinni eða mega þá notast við texta frá öðrum listamönnum, eða búa til sinn eiginn.


[breyta] Bjargir (námur)

ef þið ætlið að taka hljóðfærin upp í sitthvoru lagi er gott að nota forritið Audacity http://audacity.sourceforge.net/ til að setja allt saman. passið að vera öll í sama takti!

http://en.wikipedia.org/wiki/Reggae - aðalatriði Reggae, uppruni, áhrifavaldar, helstu flytjendur o.fl. Athugið sérstaklega málsgreinina "Musical characteristics".

http://web.bobmarley.com - einn þekktasti Raggea listamaður sögunnar, ýtarleg ævisaga hans og ýmsar upplýsingar tengdar samfélaginu sem hann ólst upp í. tilvalið efni í textagerð.

http://www.youtube.com/watch?v=L51xeN8jZio&hl=is - smámældur skrítinn Breti kennir undirstöðuatriðin á gítar sem þarf til að spila Bob Marley lagið "Stir it up".

http://www.youtube.com/watch?v=uFVhnT5rHV8 http://www.youtube.com/watch?v=6ymD7erkleQ - kennsla fyrir trommara í Raggea takti

http://www.youtube.com/watch?v=hVSIUm9gWLs - einfaldur Raggea taktur fyrir hljómborðsleikara



[breyta] Ferli

1) ákveðið hvaða hljóma þið ætlið að nota.
tillaga: A-dúr, D-dúr, E-dúr eða C-dúr, F-dúr, G-dúr

2) ákveðið hversu hratt þið viljið að lagið sé.
tillaga: best er að hafa það sem hægast meðan þið lærið stílinn.

3) æfið að spila á öðru og fjórða slagi, sama hljóminn.
dæmi: þögn - hljómur - þögn- hljómur (endurtakið oft án þess að stoppa á milli)

4) búið til 4 takta frasa með hljómunum.
tillaga: (allt fjórðupartar) A-A-D-E, í framhaldi af þessu æfið að spila þetta í taktinum sem þið æfuð áðan. dæmi: þögn - A - þögn - A, þögn - D - þögn - E (endurtakið oft án þess að stoppa á milli)

5) þegar hljómagangurinn í Raggea-taktinum er orðinn mjög öruggur getur einstaklingurinn með laglínuhljóðfærið (eða söngvarinn) byrjað að skálda laglínu. athugið að hafa laglínuna mjög einfalda, jafnvel bara sömu nótuna mörgum sinnum. það er alltaf hægt að bæta við hana og breyta þegar þið eruð orðin öruggari. laglínan þarf ekki að vera í sama takti og hljómagangurinn.

[breyta] Mat

Lagið verður að vera minnst 2 mínútur að lengd. helstu karaktereinkenni raggea-tónlistar verður að koma fram. Myndböndunum/hljóðskránum sem skilað er inn verður gefin sameiginleg einkun. þessvegna er mikilvægt að allir taki virkan þátt og geri sitt besta til að lagið verði sem best.

[breyta] Niðurstaða

eins og þið hafið vonandi komist að, er sáraeinfalt að setja saman stutt og einfalt lag í raggea stíl. þó ykkur finnist lagið e.t.v. lítilfjörlegt núna, þá er endalaust hægt að byggja ofan á grunninn sem þið bjugguð til og skapa skemmtilegt lag.