Höfrungavefleiðangur
Úr Wiki í Kennaraháskóla Íslands
Um verkefnið
Höfundur: Linda Björg Þorgrímsdóttir.
Samþætting Upplýsingatækni,ensku og líffræði. Vefleiðangurinn er ætlaður fyrir unglingastig í grunnskólum. Það er einnig hægt að einstaklingsmiða verkefnið því að í bjargir eru miserfiðar síður til að glíma við.
Markmiðið er að nemendur öðlist þekkingu á höfrungum og helstu einkennum þeirra.
Efnisyfirlit |
[breyta] Kynning
Þú ert sjávarlíffræðingur og ert að fara með hóp af nemendum í ferð til að skoða höfrunga í sínu eigin umhverfi. Það er farið með rannsóknarskipi sem er með öllum tækjabúnaði sem þarf í svona ferð. Einnig er gúmmíbátur svo nemendur geta farið í meira návígi við höfrungana og jafnvel synt með þeim. Þú þarft að vera búin/inn að útbúa efni um höfrunga sem þú telur mikilvægt að nemendurnir viti og helstu einkenni þeirra. Þú ferð með nemendum yfir efnið um borð í skipinu á leiðinni á svæðið þar sem höfrungarnir helst halda sig.
[breyta] Verkefni
Þú,sjávarlíffræðingurinn ferð inná þessar vefslóðir sem eru í bjargir hér fyrir neðan og þar eru að finna krækjur í efni um höfrunga. Þar máttu velja þér efni. Hvernig villtu fjalla um höfrunga þannig að þú getir útskýrt það fyrir þeim sem ekkert vita um þá. Það þarf að koma fram helstu einkenni þeirra svona smá samantekt um höfrunga til að kynna þá. Síðan máttu velja hvort þú skrifar í tölvu(word),glærur eða plakat. Annars er frjálst hvernig þú kemur efninu til skila til hinna áhugasömu nemendur sem eru staddir á sjó með þér að fara hitta þessi stórkostlegu og gáfuðu spenndýr.
[breyta] Bjargir (námur)
Nemendur hafa einnig aðgang að tölvum og bókasafni.
- http://www.elding.is/whales/white_beaked_dolphin/ Hér er síða á íslensku sem gefur smá lýsingu um eina tegund af höfrungum.
- http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=4716 Síða á íslensku um höfrunga.
- http://www.dolphin-institute.org/dolphin_participation/index-spinner-back.htm Síða á ensku um höfrunga og marft fleira.
- http://www.yod2007.org/en/World_of_dolphins/index.html Síða um ár höfrungsins og allt tileinkað því,margt að skoða.
- http://www.dolphin.com/ Síða um Sumarbúðir með höfrungum
- http://kids.nationalgeographic.com/Animals/CreatureFeature/Bottlenose-dolphin/ Síða með upplýsingum um höfrunga og margt fl.
- http://www.dolphins.org/kids_area.php Síða með efni fyrir krakka,myndir o.fl.
[breyta] Ferli
Hérna er uppröðun á því hvernig verkefnið er unnið:
- Fyrst er skipt í hópa og þú færð uppgefið í hvaða hóp þú ert
- Góð samvinna skiptir máli,talið saman og skiptið verkum með ykkur.
- Allir nemendur í hópnum eru sérfræðingar með það í huga að fræða nemendur sem ekki vita neitt um höfrunga.
- Lesa vel yfir leiðangurinn og þá sérstaklega um verkefni hlutann til að skilja hvað á að gera.
- Því næst skulu nemendur fara inn á bjargir og skoða krækjurnar þar til að finna sér efni.
- Nemendur velja sér efni og punkta hjá sér upplýsingar um höfrunga og helstu einkenni eins og þeir vilja fjalla um það.
- Nemendur ákveða á hvaða formi þeir vilja skila verkefninu.
- Nemendur skila verkefni sínu með því að hver hópur segir frá sínu verkefni.
[breyta] Mat
Einkunn verður gefin fyrir frammistöðu, góða samvinnu hópsins og verkefnið sjálft. Hópurinn fær einkunn.
[breyta] Niðurstaða
Eftir þetta verkefni ættu nemendur að hafa kynnt sér höfrunga og einkenni þeirra. Nemendur hafa þjálfast í leita upplýsinga og nýta sér þær. Hópvinnuþjálfun. Enska og líffræði fléttað saman í samþættingu við upplýsingatækni. Nemendur þjálfast einnig í að koma fram og lýsa verkefni sínu. Þeir sem vilja skoða þetta enn dýpra þá bendi ég á ensku síðurnar í bjargir. þar er endalaust hægt að fræðast um höfrunga og þau samtök sem eru til í kring um þá.
(þessi uppsetning á vefleiðangri er byggð á sniði frá upphafsmanni vefleiðangra Dodge, aðlagað af Salvöru Gissurardóttur)
