Dimdim
Úr Wiki í Kennaraháskóla Íslands
Dimdim er opinn netfundabúnaður. sjá þessa slóð: http://www.dimdim.com/
Skjákennsla (17 mín upptaka í Camtasia) frá Salvöru sem lýsir hvernig fyrirlesari (kennari) heldur fund í Dimdim
Það er opinn hugbúnaður og það kostar ekkert að skrá sig inn og allir geta núna þar gerst notendur og sett upp fundi þar sem allt að 20 þátttakendur geta verið. Sá sem stýrir fundi getur talað og verið með vefmyndavél (vídeó í litlum glugga) og hægt að að ákveða að gefa allt að þremur þátttakendum færi á að taka til máls. Allir þátttakendur geta hins vegar spjallað í textaspjalli.
Byrjunarleiðbeiningar með dimdim (pdf skjal á ensku)
Sá sem stýrir fundi getur hlaðið inn og sýnt powerpointglærur og skrifað og teiknað á rafræna töflu. Hann getur líka útvarpað frá sínu skjáborði (desktop sharing) sem hentar mjög vel í sýnikennslu. Ekki er hægt að vista útsendingar núna en það verður seinna boðið upp á það.
Hægt er að setja upp Dimdim búnað á eigin léni, eigin neti, en það gerir þónokkrar kröfur til tækja, manna og fjármála. Hægt er að kaup Dimdim Pro útgáfu fyrir $99 á ári, en það leyfir notanda að setja eigin stíl eða vörumerki á fundina. Nánarhér. Í stuttu máli geta fjórir talast á ókeypis á tuttugu manna fundum (ókeypis), notendur með "Pro" eða "Enterprise" utgáfu geta leyft allt að sex að tala saman á sama tíma á allt að 1000 manna ráðstefnum. Loks er til OpenSource útgáfa sem leyfir hverjum sem er að gera allt það sem "Enterprise" útgáfan leyfir svo framarlega sem þekking og tækjabúnaður er fyrir hendi.--Carlos Ferrer 13. apríl 2008 kl. 14:24 (UTC)
Nokkrar athugasemdir (apríl 2008):
"Desktop sharing" er í prófun, virkar aðeins fyrir Win tölvur (apr. 2008) en Lin og Mac á að koma seinna. Nánar hér. --Carlos Ferrer 13. apríl 2008 kl. 14:24 (UTC)
Dimdim og námskerfi
- http://link.brightcove.com/services/link/bcpid980795693/bctid1205096355
- http://www.youtube.com/watch?v=2aAHjkJ-YtM 3:26
- http://www.youtube.com/watch?v=j5YvJXyE4Z0 1:00
- http://www.youtube.com/watch?v=2zwptVdNePI 2:49 (megameeting)
- http://www.youtube.com/watch?v=dGFdRjrakc4 4:35 the Future of web conferencing in Education
