Berglind Bergsdóttir

Úr Wiki í Kennaraháskóla Íslands

Fara á: flakk, leita

[breyta] Köttur

Læða með kettlingana sína
Læða með kettlingana sína
Köttur í fjöllunum
Köttur í fjöllunum
Evrópskur köttur
Evrópskur köttur

Köttur eða húsköttur er undirtegund villikatta sem er tegund lítilla rándýra af ætt kattardýra. Kettir eru rökkurdýr og kjötætur sem hafa lifað í sambýli við menn í mörg þúsund ár. Forn-Egyptar hófu að nota ketti til að halda músum og öðrum nagdýrum frá kornbirgðum. Kettir eru eitt vinsælasta gæludýr heims. Talið er að til séu 500 milljónir húskatta í heiminum.

Kettir eru mjög hæf rándýr og vitað er til þess að þau veiði yfir 1.000 dýrategundir sér til matar. Hægt er að kenna köttum að hlýða einföldum skipunum og þeir hafa getu til þess að læra á einföld tæki eins og dyrahúna. Kettir notast við fjöldan allan af dýratáknum í samskiptum við ketti og önnur dýr, þeir mjálma, mala, hvæsa, urra og gagga. Rannsóknir benda til þess að samskipti á milli katta og manna séu töluvert þróuð. Kettir eru einnig ræktaðir og látnir keppa á kattasýningum þar sem veitt eru verðlaun fyrir fallega og hæfileikaríka ketti.

Karldýr katta kallast högni eða fress, kvendýrið læða eða bleyða og ungarnir kettlingar. Þyngd katta getur verið á milli 2-4 kg. Fengitími katta er allt árið um kring. Læður ganga með afkvæmi sín í um það bil 60 daga. Fjöldi afkvæma eru á milli 3-5 kettlinga í hverju goti. Getur þó verið minna. Hreinræktaðir kettir eru innan við eitt prósent af köttum, en til eru tugir tegundarafbrigða og litbrigða. Til eru hárlausir kettir sem nefnast Sfinxar.


Íslenski kötturinn

Íslenski kötturinn hefur fylgt manninum allt frá landnámi. Íslenska kattarkynið hefur haldist nokkuð vel í gegnum tíðina, en nú í dag er orðið svo mikið um innflutning á köttum að einhver blöndun hefur átt sér stað. Í gamla daga var kötturinn mikið nytjadýr á Íslandi. Hlutverk hans var að halda rottum og músum frá híbýlum manna. Íslenskir kettir eru taldir vera nokkrar þúsundir.

Kattaeigendur

Kattaeigendur og þeir sem hafa áhuga á að eignast kött, þurfa að huga að ýmsu. Sem dæmi þarf daglega að gefa kettinum að éta og þrífa allt sem í kringum hann er. Skoða þarf feld kattarins reglulega, athuga aðskotahluti á loppum, athuga eyru og augu, bursta tennur og margt fleira. Ef einhver grunur er um að kettinum líði ekki vel, þarf að fara með hann til dýralæknis. Auk þess þarf að bólusetja köttinn gegn kattafári og kattainflúensu.

[breyta] Krossapróf um ketti

1. Kettir eru?

rándýr
spendýr
skordýr

2. Hvað kallast karldýr katta?

kettlingur
læða
högni

3. Hversu margar dýrategundir er vitað til að kettir veiði sér til matar?

1000
998
1002

4. Hlutverk katta á Íslandi í gamla daga var?

að vera leikfélagar barnanna
að reyna að minnka illgresi
reyna að fækka músum og rottum

Stig þín eru 0 / 0






Samið af Berglindi Bergsdóttir í mars 2009 Wikiverkefni á námskeiðinu Upplýsingatækni og miðlun

[breyta] Heimildir og ítarefni

Fjölskyldu og húsdýragarðurinn. (2005, febrúar). Húsdýr. Kettir. Sótt 8. mars 2009 af http://www.mu.is/husdyr/kettir/.

Greinin Köttur á íslensku útgáfunni á Wikipedia. Sótt 8. mars 2009.