Audacity

Úr Wiki í Kennaraháskóla Íslands

Fara á: flakk, leita

Audacity er ókeypis forrit sem er hægt að taka upp hljóð og vista sem mp3 of spila á tölvur eða mp3 spilari.

Audacity

Wiki um Audacity á ensku

Mynd:Audacity-logo.jpg

Leiðbeining:

1. Ræsa forritið AUDACITY

2. Tengja míkrafóninn á réttan stað

Mynd:Audacityone.jpg

3. Passa að mute sé ekki á (niðri til hægri

4. Setja “Output volume” á 0,7-8

5. Ýta á rauða upptökutakkann

6. Tala inn – þetta er prufa... til að prófa græjurnar

7. Taka pásu með því að ýta á bláa takkann

8. Stoppa með því að ýta gula (ferkantaða) takkann til að stoppa alveg!

9. Hlusta á upptöka með því að ýta á græna takkann

10. Það er hægt að klippa og laga hljóð áður enn þú vista það.

11. Fara svo inn í FILE í forritinu.

12. Velja -> export as MP3!!!! (sem er mjög mikilvægt).

13. Gefa skjal nafn (t.d ÍSL103 o.s.frv.)

14. Vista á stað sem þú vilt geima skjöll.

Mynd:Lame.jpg

15. Ef það kemur upp að það vantar lame_enc.dll þá ýtir maður á Yes og finnur það í Audacity Möppu, á C-drifi eða undir program files. Þú þarft að gera þetta bara einu sinni.

Skrá

16. Skrá inn upplýsingar um heiti (Title) og nafn höfundar (Artist), dags. t.d. ISL 103 Album, Track Number og Genre skipti ekki máli.

Save

17. Áður enn þú ferð út úr Audacity forritinu!! Finna svo verkefnið á drifi og spila það.. til að prófa að það sé þarna örugglega

[breyta] breyta mp3 í annað format

Einn af þeim kostum sem audacity býður upp á er að breyta einu formati yfir í annað. Segjum sem svo að þú hafir tekið upp tónleika á minidisk spilarann þinn og þegar þú færir það yfir á tölvuna þína er það í .wav en þú vilt fá það í .mp3 þá getur t.d. gert eftirfarandi:

  • ræst audacity og gert file > import > audio
  • náð í lagið þitt, gæti tekið nokkrar mínútur
  • file > export as > mp3

þá breytir forritið laginu þínu yfir í formatið sem þú velur.

[breyta] Effect

Audacity býður uppá fjölmarga möguleika við að breyta hljóðum með því að fara í flipann sem heitir effect. til að breyta, velur þú þann bút úr hljóðinu þínu sem þú vilt breyta og einfaldlega velur þann kost sem þú vilt. Hér eru nokkur dæmi:

  • amplify - eykur hljóðstyrkinn
  • bass boost - eykur bassann í laginu
  • change pitch - breytir hæð nótunnar, bæði er hægt að fara upp eða niður. forritið greinir á hvaða tóni hljóðið er, og býður þér að breyta því. þetta hefur samt ekki áhrif á hraða hljóðsins.
  • change speed - þetta breytir hraða hljóðsins og um leið hæð (pitch) nótunnar. ef þú vilt breyta ræðunni þinn í atriði úr Chipmonks myndinni þá er þetta fídusinn fyrir þig
  • change tempo - þetta breytir hraðanum en ekki tónhæðinni
  • click removal - tekur burt umhverfishljóð (til dæmis ef þú hefur verið að taka upp hljóð og haft taktmæli á)
  • echo - bætir við enduvarpi, þú ræður hversu seint á eftir það kemur.
  • reverse - snýr hljóðbút við (eins og á sgt. pepper :)
  • wahwah - mjög erfitt að útskýra, en þetta býr til svona wah-wah hljóð úr bútnum þínum. mjög töff.